trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Sumarferðin 21. til 23. júní     Skráning í sumarferð 2013
Sumarferð félagsins verður að Logalandi í Borgarfirði 21. til 23. júní nk.

Dagskrá:
Á föstudagskvöldinu hittumst við í salnum og spjöllum saman og segjum brandara. Hafið með ykkur gítar eða harmonikku.
Á laugardag kl. 10:30 verður farið á eigin bílum (menn geta sameinast í bíla) í skoðunarferð um nágrennið. Eftir skoðunarferðina verður bingó. Kveikt verður upp í grillinu kl 18:00 og síðan skemmtum við okkur fram eftir nóttu.

Matur:
Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:
Þátttökugjaldið er kr. 4000,- fyrir fullorðna, sem er fyrir leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði, svefnpokaplássi og matinn á laugardagskvöldinu og fleira.
Frítt er fyrir börn yngri en 14 ára.
Þeir sem ekki gista greiða kr. 2500.-

Ferðir:
Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Skráning:
Skráning í ferðina og pöntun á gistingu, er hægt að gera á heimasíðu félagsins www.bf.is  “Skráning í sumarferð 2013”

Einnig er hægt skrá sig í ferðina og panta gistingu hjá Sæunni Thorarensen í síma 864-2201 og Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og er um að gera að panta strax.
Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn.

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir þriðjudaginn 18. júní vegna matarinnkaupa ofl.

Additional information