Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu
Spurningakeppni átthagafélagana 2014
Úrslitin ráðast á föstudagskvöldið þegar fjögur geysisterk lið mætast og stefna á sigur.
Tekst Breiðfirðingum að halda titlinum eða ná Skaftfellingar, Siglfirðingar eða Húnvetningar að skáka þeim?
Það er bara ein leið að finna út úr því, mæta í Breiðfirðingabúð.
Að venju kostar 750 krónur inn.
Frítt fyrir 16 ára og yngri.
Að keppni lokinni verður opið hús, barinn opinn, tónlist á fóninum og gott tækifæri til skrafs og skemmtunar.
Fjölmennum!