trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 1. tbl. janúar. 2015 21. árg. er komið út.

 

Fréttabréf   

BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS

Faxafen 14. 108 Reykjavík S: 581-4511

1. tbl. jan. 2015 21. árgangur

Ábyrgðarmaður Snæbjörn Kristjánsson

 

Gleðilegt ár

 

Kæru félagar, ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegs árs og þakka ánægjulegar samverustundir á nýliðnu ári. 

Félagsvistin hefur ekki verið líflegri um langan tíma og hefur verið spilað á allt að 22 borðum. Aðsókn að Bridge var góð á liðnu hausti. Prjónakaffið var vel sótt fram í haust og hefst aftur 12. janúar. 

Breiðfirðingakórinn hélt sína árlegu jólatónleika í Neskirkju þann 14. desember og söng barnakór Ísaksskóla með. Kórinn söng síðan á Laugarveginum 20. og 23 desemberfyrir fólk sem átti leið þar um. Jólaskemmtunin var haldin þann 27. desember, aðsóknin var ágæt. Félagar úr Breiðfirðingakórnum sáu um tónlist og uppákomur. Tveir jólasveinar mættu á skemmtunina. 

Árshátíð á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð laugardaginn 24. janúar. Sjá nánar á baksíðu. Spurningakeppni átthagafélaganna hefst væntanlega 19. febrúar og verður haldin í Breiðfirðingabúð og verður nánar fjallað um hana í næsta fréttabréfi. Aðalfundur félagsins verður síðan haldinn þriðjudaginn 24. febrúar n.k. en dagskrá hans verður auglýst nánar í næsta fréttabréfi. Ég hvet félagsmenn til að hafa samband við félaga í kjörnefnd, hafi þeir áhuga eða vita um einhvern sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í stjórn félagsins fyrir 6. febrúar. Kjörnefnd skipa þau: Benedikt Egilsson, s: 824-8402, Bjarnheiður Magnúsdóttir, s: 862-0546 og Guðmundur Theodórs s: 894-0328. Það er mikið áhyggjuefni að fyrir síðustu aðalfundi hefur ekki náðst að uppfylla lágmarkskröfur um fjölda þeirra sem gáfu kost á sér á kjörlistann, samkvæmt 13. gr. í lögum félagsins. 

Kær kveðja 

Snæbjörn Kristjánsson, formaður

Félagsvist verður spiluð eftirtalda sunnudag

11. jan.           1. dagur í fjögurra daga keppni

18. jan.           2. dagur í fjögurra daga keppni

25. jan.           3. dagur í fjögurra daga keppni

  1. febr.         4. dagur í fjögurra daga keppni

  8. febr.         Félagsvist stakur dagur

15. febr.         1. dagur í fjögurra daga keppni

22. febr.         2. dagur í fjögurra daga keppni

  1. mars         3. dagur í fjögurra daga keppni

  8. mars         4. dagur í fjögurra daga keppni

15. mars        Félagsvist stakur dagur

22. mars        1. dagur í fjögurra daga keppni

29. mars        2. dagur í fjögurra daga keppni

12. apríl         3. dagur í fjögurra daga keppni

19. apríl         4. dagur í fjögurra daga keppni

Spilin hefjast alla dagana stundvíslega kl. 14:00

Fyrstu verðlaun kvenna og karla verða kr. 4.000,- og önnur verðlaun kr. 2.500,- auk þess fær sá sem oftast situr við sama borð svolitlar sárabætur.

Í fjögurra daga keppni eru spilaðir fjórir dagar, en þrír bestu gilda við útreikning stiga. Veitt eru heildarverðlaun að verðmæti kr. 10.000,- fyrir fyrsta sætið og kr. 5.000 fyrir annað sætið.

Sá sem verður hæstur eftir veturinn í heild mun fá sérstakan glaðning, eins konar heiðursverðlaun í vor.

Góðar kaffiveitingar eru eftir spilin. Miðaverð er kr. 1200,-.

 

Prjónakaffi í Breiðfirðingabúð

Prjónakaffið verður annan hvern mánudag, kl. 19:30 og byrjað verður 12. janúar. og síðan dagana 26. jan., 9. febr., 23. febr. 9. mars, 23. mars, 13. apríl og 20. apríl. Upplýsingar gefa Erla í síma 898-6747, Sæunn í síma 864-2201 og Jófríður í síma 862-6414. Takið með ykkur handavinnuna og/eða sjáið hvað verið er að gera. Kaffi og gos verður til sölu.

 

Breiðfirðingafélagið Bridgedeild

Kæru spilafélagar.

Nú spilum við áfram bridge á sunnudagskvöldum til vors. Allir er velkomnir til okkar. Spilakvöldið kostar 900 kr. og er kaffi og te innifalið eins og hver vill. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram nema í hraðsveitarkeppnina. Skráningu í hana þarf að vera lokið fyrir 23. febrúar. Ingibjörg Guðmundsdóttir tekur við skráningum í síma 892-8977 eða í netfangi  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Kveðja

Stjórn Bridgedeildar Breiðfirðingafélagsins

 

11. Janúar   Tvímenningur  

18. Janúar   Tvímenningur

25. Janúar   Tvímenningur keppni 1 af 4

  1. Febrúar Tvímenningur keppni 2 af 4

  8. Febrúar Tvímenningur keppni 3 af 4

15. Febrúar Tvímenningur keppni 4 af 4

22. Febrúar Tvímenningur

  1. Mars     Hraðsveitakeppni 1 af 3

  8. Mars     Hraðsveitakeppni 2 af 3

15. Mars     Hraðsveitakeppni 3 af 3

22. Mars     Tvímenningur

29. Mars     Páskamót/Barómeter

12. Apríl    Tvímenningur

19. Apríl    Tvímenningur keppni 1 af 4

26. Apríl    Tvímenningur keppni 2 af 4

  3. Maí      Tvímenningur keppni 3 af 4

10. Maí      Aðalfundur/tvímenningur keppni 4 af 4

Í 4 kvölda tvímenningi eru tekin 3 bestu skiptin og eru verðlaunapeningar fyrir 3 efstu sætin.  Einnig eru verðlaun veitt fyrir hraðsveitakeppnina og barómeter

Helstu atriði dagskrár til sumars:

24. jan.      Árshátíð á Þorra. Takið kvöldið frá strax.

21. mars.   Páskabingó, kl 14:30

  3. maí.     Dagur aldraðra, kl 14:30

  2. júní.     Gróðursetningarferð í Heiðmörk.

26. til 28. júní.  Sumarferð félagsins.

 

Árshátíð á þorra

 

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 24. janúar 2015.

Borðhald hefst stundvíslega kl. 20:00, en húsið verður opnað kl.19:00.

 

Veislustjóri verður Jóhannes Kristjánsson.

Óvæntir leynigestir.

Hljómsveitin Traustir vinir leikur fyrir dansi til kl. 02:00.

Miðaverð er kr. 6.500 kr.

 

Þeir sem einungis koma á dansleikinn greiða kr. 2.000.

Miðapantanir hjá Þresti Elíassyni í síma 892-3068.

 

Miðasalan fer síðan fram í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 18. janúar frá kl.16:30 til 18:30.

Einnig er hægt að sækja miða miðvikudaginn 21. janúar frá kl. 19:00 - 20:30.

Miðar sem ekki hafa verið sóttir í síðasta lagi 21. janúar verða seldir öðrum.

 

Félagsmenn Breiðfirðingafélagsins og gestir þeirra hafa forgang að miðum til 18. janúar.

 

 

 

Additional information