trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 2. tbl. febrúar. 2015 21. árg. er komið út.

Fréttabréf   

BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS

Faxafen 14. 108 Reykjavík S: 581-4511

2. tbl. feb. 2015 21. árgangur

Ábyrgðarmaður Snæbjörn Kristjánsson

Kæru félagsmenn

Þá er janúarmánuður liðinn en hann hefur verið vindasamur og rysjóttur. Senn líður að aðalfundi félagsins, en hann verður haldinn í Breiðfirðingabúð, þriðjudaginn 24. febrúar, kl 20:30. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta. Kjörnefnd hefur unnið hörðum höndum að finna fólk til að gefa kost á sér í stjórn, en hana skipa þau: Benedikt Egilsson, s: 824-8402, Bjarnheiður Magnúsdóttir, s: 862-0546 og Guðmundur Theodórs s: 894-0328.

Eins og ævinlega mun Félag Breiðfirskra kvenna sjá um kaffi og meðlæti. Starfsemi félagsins er nú í fullum gangi og gengur vel. Spurningakeppni átthagafélaganna í Reykjavík, hefst í Breiðfirðingabúð, þann 19. febrúar og stendur til 12. mars, sjá nánar á næstu síðu. Félagsvist er spiluð á sunnudögum og bridge á sunnudagskvöldum. Þátttaka í spilum hefur verið góð í vetur. Prjónakaffið heldur sínu striki en gaman væri að sjá fleiri mæta. Árshátíð á þorra var haldin í Breiðfirðingabúð laugardaginn 24. janúar. Veislustjóri var Jóhannes Kristjánsson. Einnig kom  Tindatríóið og skemmti okkur með söng og gríni. Hljómsveitin Traustir vinir lék fyrir dansi. Ég vil fyrir hönd félagsins þakka öllum, sem stóðu að árshátíðinni, fyrir frábæra skemmtun. Margt er enn á dagskrá félagsins, Páskabingó og svo að sjálfsögðu dagur aldraðra, sjá nánar á næstu síðu.

Kær kveðja

Snæbjörn Kristjánsson, formaður

 

Spurningakeppni átthagafélaganna 2015:

Spurningakeppni átthagafélaganna hefst 19. febrúar og verður síðan 26. febr., 8 liða úrslit 5. mars og úrslit 12. mars. Það eru lið frá 19 átthagafélögum og verður öll keppnin tekin upp og sýnd á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Við hvetjum ykkur til að mæta og hvetja ykkar fólk sérstaklega en allir eru velkomnir öll kvöldin.

Grétar Sæmundsson hefur tekið að sér leiða liðið okkar, en hann var sem kunnugt er í liði MR í spurningakeppni framhaldsskólana.
Keppnin hefst kl 20:00 öll kvöldin, húsið opnar kl 19:30.
Aðgangseyrir verður 1.000 krónur.

Sjá nánar á heimasíðu félagsins This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 

Félagsvist verður spiluð eftirtalda sunnudaga:

15. febr. 1. dagur í fjögurra daga keppni

22. febr. 2. dagur í fjögurra daga keppni

  1. mars 3. dagur í fjögurra daga keppni

  8. mars 4. dagur í fjögurra daga keppni

15. mars  Félagsvist stakur dagur

22. mars 1. dagur í fjögurra daga keppni

29. mars 2. dagur í fjögurra daga keppni

12. apríl 3. dagur í fjögurra daga keppni

19. apríl 4. dagur í fjögurra daga keppni

 

Spilin hefjast alla dagana stundvíslega kl. 14:00

Fyrstu verðlaun kvenna og karla verða kr. 4.000,- og önnur verðlaun kr. 2.500,- auk þess fær sá sem oftast situr við sama borð svolitlar sárabætur.

Í fjögurra daga keppni eru spilaðir fjórir dagar, en þrír bestu gilda við útreikning stiga. Veitt eru heildarverðlaun að verðmæti kr. 10.000,- fyrir fyrsta sætið og kr. 5.000 fyrir annað sætið.

Sá sem verður hæstur eftir veturinn í heild mun fá sérstakan glaðning, eins konar heiðursverðlaun í vor.

Góðar kaffiveitingar eru eftir spilin. Miðaverð er kr. 1200,-.

 

Breiðfirðingur

Ákveðið hefur verið að hefja útgáfu Breiðfirðings á nýjan leik eftir nokkurra ára hlé. Þeir sem vilja gerast áskrifendur eru beðnir um að skrá kennitölu, nafn og heimilisfang á heimasíðu félagsins www.bf.is (Hafa samband) eða í tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

 

Prjónakaffi í Breiðfirðingabúð

Prjónakaffið er annan hvern mánudag, kl. 19:30 og er næsta prjónakaffið 9. febr., 23. febr. 9. mars, 23. mars, 13. apríl og 20. apríl. Upplýsingar gefa Erla í síma 898-6747, Sæunn í síma 864-2201 og Jófríður í síma 862-6414. Takið með ykkur handavinnuna og/eða sjáið hvað verið er að gera. Kaffi og gos verður til sölu.

 

Breiðfirðingafélagið Bridgedeild

 

Kæru spilafélagar.

Nú spilum við áfram bridge á sunnudagskvöldum til vors. Allir er velkomnir til okkar. Spilakvöldið kostar 900 kr. og er kaffi og te innifalið eins og hver vill. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram nema í hraðsveitarkeppnina. Skráningu í hana þarf að vera lokið fyrir 23. febrúar. Ingibjörg Guðmundsdóttir tekur við skráningum í síma 892-8977 eða í netfangi This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Kveðja

Stjórn Bridgedeildar Breiðfirðingafélagsins

15. Febrúar Tvímenningur keppni 4 af 4

22. Febrúar Tvímenningur

  1. Mars     Hraðsveitakeppni 1 af 3

  8. Mars     Hraðsveitakeppni 2 af 3 1

  5. Mars     Hraðsveitakeppni 3 af 3

22. Mars Tvímenningu 

29. Mars Páskamót/Barómeter

12. Apríl Tvímenningur

19. Apríl Tvímenningur keppni 1 af 4

26. Apríl Tvímenningur keppni 2 af 4

  3. Maí   Tvímenningur keppni 3 af 4

10. Maí   Aðalfundur/tvímenningur keppni 4 af 4

 

Í 4 kvölda tvímenningi eru tekin 3 bestu skiptin og eru verðlaunapeningar fyrir 3 efstu sætin.  Einnig eru verðlaun veitt fyrir hraðsveitakeppnina og barómeter

 

Helstu atriði dagskrár til sumars:

21. mars.   Páskabingó, kl 14:30

  3. maí.     Dagur aldraðra, kl 14:30

  2. júní.     Gróðursetningarferð í Heiðmörk.

26. til 28. júní.  Sumarferð félagsins.

 

Tillögur um lagabreytingar

Stjórn Breiðfirðingafélagsins leggur til við aðalfund félagsins haldinn 24. febrúar 2015 eftirfarandi breytingar á lögum félagsins:

9. gr.

Stjórn félagsins skipa 7 menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og þrír meðstjórnendur. Varastjórn skipa þeir 3, sem næstir verða aðalmönnum að atkvæðamagni við stjórnarkjör. Formann skal kjósa fyrst og sérstaklega. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.

 

Þessi grein hljóði svo eftir breytingu:

9. gr.

Stjórn félagsins skipa 5 menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Varastjórn skipa þeir 2, sem næstir verða aðalmönnum að atkvæðamagni við stjórnarkjör. Formann skal kjósa fyrst og sérstaklega. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.

Aðalfundarboð

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í

Breiðfirðingabúð þriðjudaginn 24. febrúar 2015

og hefst stundvíslega kl. 20:30

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Lagabreytingar

3. Önnur mál

Kaffiveitingar

 

Additional information