trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 1. tbl. janúar. 2016 22. árg. er komið út.

Fréttabréf   

BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS

Faxafen 14. 108 Reykjavík S: 581-4511

1. tbl. jan. 2016 22. árgangur

Ábyrgðarmaður Snæbjörn Kristjánsson

 

Gleðilegt ár

Kæru félagar, ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegs árs og þakka ánægjulegar samverustundir á nýliðnu ári. 

Félagsvistin var heldur dræm þegar leið á haustið. Aðsókn að Bridge var góð á liðnu hausti. Prjónakaffið var vel sótt í haust og hefst aftur 11. janúar. 

Breiðfirðingakórinn hélt sína árlegu jólatónleika í Fella- og Hólakirkju þann 10. desember. Kórinn söng síðan í Miðborginni 19. og 20 desember fyrir fólk sem átti leið þar um. Jólaskemmtunin var haldin þann 27. desember, aðsóknin var mjög dræm. Félagar úr Breiðfirðingakórnum sáu um tónlist og uppákomur. Tveir jólasveinar, Stúfur og Hurðaskellir, mættu á skemmtunina. Árshátíð á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð laugardaginn 23. janúar. Sjá nánar á baksíðu. Aðalfundur félagsins verður síðan haldinn þriðjudaginn 18. febrúar n.k. en dagskrá hans verður auglýst nánar í næsta fréttabréfi. Ég hvet félagsmenn til að hafa samband við félaga í kjörnefnd, hafi þeir áhuga eða vita um einhvern sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í stjórn félagsins fyrir 6. febrúar. Kjörnefnd skipa þau: Benedikt Egilsson, s: 824-8402, Bjarnheiður Magnúsdóttir, s: 862-0546 og Guðmundur Theodórs s: 894-0328. Það er mikið áhyggjuefni að fyrir síðustu aðalfundi hefur ekki náðst að uppfylla lágmarkskröfur um fjölda þeirra sem gáfu kost á sér á kjörlistann, en vonandi verður það auðveldara eftir breytingu á 13. gr. Í lögum félagsins, en þá var stjórnarmönnum fækkað úr sjö í fimm. Næsta hefti af Breiðfirðingi kemur út í vor og er Svavar Gestsson ritstjóri, eins og í fyrra. Þeir sem vilja gerast áskrifendur eru beðnir um að skrá kennitölu, nafn og heimilisfang á heimasíðu félagsins www.bf.is (opna “Hafa samband” á heimasíðunni) eða í tölvupósti á  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . 

Kær kveðja 

Snæbjörn Kristjánsson, formaður

 

Félagsvist verður spiluð eftirtalda sunnudaga:

 

10. jan.           Félagsvist stakur dagur

17. jan.           1. dagur í þriggja daga keppni

24. jan.           2. dagur í þriggja daga keppni

31. jan.           3. dagur í þriggja daga keppni

  7. febr.          1. dagur í fjögurra daga keppni

14. febr.          2. dagur í fjögurra daga keppni

21. febr.          3. dagur í fjögurra daga keppni

28. febr           4. dagur í fjögurra daga keppni

  6. mars         1. dagur í þriggja daga keppni 

13. mars         2. dagur í þriggja daga keppni

20. mars         3. dagur í þriggja daga keppni

  3. apríl          1. dagur í fjögurra daga keppni

10. apríl          2. dagur í fjögurra daga keppni

17. apríl          3. dagur í fjögurra daga keppni

24. apríl          3. dagur í fjögurra daga keppni  

Spilin hefjast alla dagana stundvíslega kl. 14:00 

Fyrstu verðlaun kvenna og karla verða kr. 4.000,- og önnur verðlaun kr. 2.500,- auk þess fær sá sem oftast situr við sama borð svolitlar sárabætur. 

Í fjögurra daga keppni eru spilaðir fjórir dagar, en þrír bestu gilda við útreikning stiga. Veitt eru heildarverðlaun að verðmæti kr. 10.000,- fyrir fyrsta sætið og kr. 5.000 fyrir annað sætið. 

Sá sem verður hæstur eftir veturinn í heild mun fá sérstakan glaðning, eins konar heiðursverðlaun í vor. 

Góðar kaffiveitingar eru eftir spilin. Miðaverð er kr. 1200,-.

 

Prjónakaffi í Breiðfirðingabúð 

Prjónakaffið verður annan hvern mánudag, kl. 19:30 og byrjað verður 11. janúar. og síðan dagana 25. jan., 8. febr., 22. febr. 7. mars, 21. mars, 4. apríl og 18. apríl. Upplýsingar gefa Erla í síma 898-6747, Sæunn í síma 864-2201 og Jófríður í síma 862-6414. Takið með ykkur handavinnuna og/eða sjáið hvað verið er að gera. Kaffi og gos verður til sölu.

  

Breiðfirðingafélagið Bridgedeild  

Kæru spilafélagar. Nú er vetrarstarfið að hefjast og verður spilað á sunnudögum kl. 19:00. Fyrsta spilakvöldið verður sunnudagskvöldið 10. janúar og hefst kl. 19:00.  Þetta fyrsta kvöld verður tvímenningur. Sjá dagskrá hér fyrir neðan.   Spilakvöldið  kostar  kr. 1000 og er kaffi og te innifalið.  Síðasti spiladagur í vor verður 8. maí.  Vonumst til að sjá sem flesta. Hvetjum félaga okkar til að taka með sér nýja spilamenn.  Hjá okkur er upplagt að byrja að æfa sig að spila Bridge. Allir velkomnir. 

Kveðja 

Stjórn Bridgedeildar Breiðfirðingafélagsins 

Spilakvöldin fram á vor:

10. janúar      Tvímenningur

17. janúar      Tvímenningur

24. janúar      Tvímenningur keppni 1 af 4

31. janúar      Tvímenningur keppni 2 af 4

  7. febrúar     Tvímenningur keppni 3 af 4

14. febrúar     Tvímenningur keppni 4 af 4

21. febrúar     Tvímenningur

28. febrúar     Hraðsveitakeppni 1 af 3

  6. mars         Hraðsveitakeppni 2 af 3

13. mars         Hraðsveitakeppni 3 af 3 

20. mars         Páskamót/Barómeter

  3. apríl          Tvímenningur

10. apríl          Tvímenningur keppni 1 af 4

17. apríl          Tvímenningur keppni 2 af 4

24. apríl          Tvímenningur keppni 3 af 4

  1. maí           Tvímenningur keppni 4 af 4

  8. maí           Aðalfundur/tvímenningur

  

Í 4 kvölda tvímenningi eru tekin 3 bestu skiptin og eru verðlaunapeningar fyrir 3 efstu sætin.  Einnig eru verðlaun veitt fyrir hraðsveitakeppnina og barómeter

  

Helstu atriði dagskrár eftir áramót: 

23. jan.      Árshátíð á Þorra. Takið kvöldið frá strax. 

18. febr.     Aðalfundur kl. 20:00 

12. mars.   Páskabingó, kl 14:30 

  8. maí.     Dagur aldraðra, kl 14:30 

  1. júní.     Gróðursetningarferð í Heiðmörk. 

24. til 26. júní.  Sumarferð félagsins.

  

Árshátíð á þorra 

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 23. janúar 2016. 

Borðhald hefst stundvíslega kl. 19:30, en húsið verður opnað kl.18:30. 

  

Tindatríóið sér um veislustjórn. 

Hljómsveitin Traustir vinir leikur fyrir dansi til kl. 01:00. 

Miðaverð er kr. 7.000 kr. 

Þeir sem einungis koma á dansleikinn greiða kr. 2.000. 

Miðapantanir hjá Þresti Elíassyni í síma 892-3068. 

Miðasalan fer síðan fram í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 17. janúar frá kl.16:30 til 18:30. 

Einnig er hægt að sækja miða miðvikudaginn 20. janúar frá kl. 19:00 - 20:30. 

Miðar sem ekki hafa verið sóttir í síðasta lagi 20. janúar verða seldir öðrum. 

Félagsmenn Breiðfirðingafélagsins og gestir þeirra hafa forgang að miðum til 17. janúar.

  

 

Additional information