Áminning
Minnum á aðalfund félagsins í kvöld kl. 20:00 í Breiðfirðingabúð.
Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 20. febrúar 2020 og hefst stundvíslega kl. 20:00.
1. Inntaka nýrra félagsmanna.
2. Skýrsla stjórnar um störf félagsins frá síðasta aðalfundi.
3. Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir næstliðið almanaksár.
4. Skýrslur deilda félagsins. Það eru: Brigedeild, Minningarsjóður og Breiðfirðingakórinn.
5. Árgjald félaga ákveðið fyrir yfirstandandi ár.
6. Aðalstjórn félagsins kosin, til eins árs, ásamt varamönnum.
7. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga, til eins árs, ásamt varamönnum
Í lögum félagsins segir: Allir félagar eru skyldir til að taka við kosningu í þágu félagsins. Þó geta þeir sem setið hafa í stjórn 3 ár samfleytt skorast undan endurkosningu.
Engar tillögur um lagabreytingar hafa borist.
Kaffiveitingar verða í boði Breiðfirskra kvenna.