Event
Description
Breiðfirðingafélagið og U3A Reykjavík efna til samstarfs um Breiðfirsk fræði. Ákveðnir hafa verið 3 fimmtudagsfyrirlestrar sem hefjast allir kl. 20 í Breiðfirðingabúð og síðan verður dagsferð í Dalina.
* 26. apríl mun Svavar Gestsson ritstjóri timaritsins Breiðfirðings og fyrrv. ráðherra tala almennt um byggðarlagið.
* 17. maí mun dr. Árni Björnsson þjóðháttafræðingur flytja fyrirlestur um huldufólk.
* 24. maí mun Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur og doktorsnemi flytja fyrirlestur um konurnar í Ólafsdal.
* Laugardaginn 2. júní verður farið í rútuferð í dalina undir leiðsögn Svavars Gestssonar. Farinn verður hinn „gullni hringur“ héraðsins.