Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu
Spurningakeppni 21.3.2013
Þriðji hluti spurningakeppninar fór fram þann 21. mars og kepptum við þá við Árnesingafélagið. Okkar lið hafði betur og komst í fjögurra liða úrslitin.
Þeir sem kepptu þetta kvöldið voru, talið frá vinstri: Elís Svavarsson, Páll Guðmundsson og Karl Hákon Karlsson.
4 liða úrslitin verða 11. apríl og þá keppa:
Skaftfellingafélagið - Breiðfirðingafélagið
Norðfirðingafélagið - Dýrfirðingafélagið
Úrslitakeppnin fer fram síðasta vetrardag, 24. apríl
Keppnin verður haldin í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14 (fyrir ofan Bónus). Hægt er að taka lyftu ef gengið er inn um norðurinnganginn. Húsið opnar kl. 19:30 og keppnin hefst kl. 20:00.
Aðgangseyrir kr. 500,-