trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 4. tbl. júní. 2014 20. árg. er komið út.

Fréttabréf    

BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 

Faxafen 14. 108 Reykjavík S: 581-4511 

4. tbl. júní. 2014 20. árgangur

Kæru félagsmenn
Nú er sumarið gengið í garð, og hafa þessir fyrstu dagar júnímánaðar verið góðir. Vetrarstarfi félagsins lauk með degi aldraðra þann 4. maí sl. og var fjölmenni eins og undanfarin ár. Kórinn söng nokkur lög af dagskrá sinni. Félag breiðfirskra kvenna og stjórn félagsins sáu um kaffið, en meðlætið sáu þær um ásamt skemmtinefnd, nokkrum kórfélögum og stjórn félagsins. Breiðfirðingakórinn hélt sína árlegu vortónleika laugardaginn 8. maí sl. í Langholtskirkju. Dagskráin var fjölbreytt með lögum af ýmsu tagi. Síðan fór kórinn í söngferðalag í Dalina og var sungið í Dalabúð og á Staðarfelli. Gist var á Vogi og síðan var farið fyrir strandir. Kristjón og Sigurjóna buðu kórnum í kaffi og meðlæti í sumarhúsi sínu og var lagið tekið fyrir þau. Við minnisvarðann um Jón frá Ljárskógum var sungið lagið, Aftan blærinn andar. Hlúð var að reitnum okkar í Heiðmörk 3. júní, gróðursettar plöntur, lagaður  bekkur og gangstígur. Það var eftirtektarvert hvað mikið af því sem gróðursett hefur verið síðustu árin er komið vel á veg. Sumarferð félagsins verður farin að Árbliki 27. til 29. júní nk. og verður dagskráin með svipuðu sniði og undanfarin ár, sjá nánar á bls. 2. Við vonumst til að sjá sem flesta í sumarferðinni. Vetrardagskráin hefst síðan um miðjan september, sjá nánar á www.bf.is.
Kær kveðja
Snæbjörn Kristjánsson, formaður

Sumarferð
Sumarferð félagsins verður að Árbliki 27. til 29. júní.

Dagskrá:  
Á föstudagskvöldinu hittumst við í salnum og spjöllum saman og segjum brandara. Hafið með ykkur gítar eða harmonikku.  
Á laugardag kl. 10:30 verður farið á eigin bílum (menn geta sameinast í bíla) í skoðunarferð um nágrennið. Spilað verðu bingó að skoðunarferð lokinni. Kveikt verður upp í grillinu kl 18:00 og síðan skemmtum við okkur fram eftir nóttu.
Hljómsveitin Traustir vinir leika fyrir dansi.

Matur:
Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:
Þátttökugjaldið er kr. 4000,- fyrir fullorðna, sem er fyrir leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði, svefnpokaplássi og matinn á laugardagskvöldinu, hljómsveit og fleira.
Frítt er fyrir börn yngri en 14 ára.
Þeir sem ekki gista greiða kr. 2500.-
Ferðir:
Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Skráning:
Skráning í ferðina og pöntun á gistingu, er hægt að gera á heimasíðu félagsins www.bf.is  “Skráning í sumarferð 2014”

Einnig er hægt skrá sig í ferðina og panta gistingu hjá Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og er um að gera að panta strax.

Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn.

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir þriðjudaginn 24. júní vegna matarinnkaupa ofl.

 

Fréttabréfið í tölvupósti

 

Stöðugt fjölgar þeim sem fá fréttabréfið sent í tölvupósti og er það töluverður sparnaður fyrir félagið,  því póstburðargjöld, pappír og ljósritunarkostnaður fer stöðugt hækkandi.
Til að fá fréttabréfið sent í tölvupósti er þægilegast að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. þar sem  nafn og heimilisfang kemur fram.

 

Skráning nýrra félaga

 

Ef þið þekkið einhvern sem vill ganga í Breiðfirðingafélagið, þá er hægt að skrá sig á netinu www.bf.is “Skráningar”

 


Minningarkort Breiðfirðingafélagsins

Minningarkort Breiðfirðingafélagsins eru til sölu hjá Grétari Sæmundssyni í síma 551-0986 og hjá húsvörðum Breiðfirðingabúðar í síma 892-4511.

 

 

Additional information