trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 4. tbl. júní. 2015 21. árg. er komið út.

 

Fréttabréf   

 

BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS

 

Faxafen 14. 108 Reykjavík S: 581-4511

 

3. tbl. apríl. 2015 21. árgangur

 

Ábyrgðarmaður Snæbjörn Kristjánsson

 

Kæru félagsmenn

Nú er sumarið vonandi gengið í garð. Vetrarstarfi félagsins lauk með degi aldraðra þann, 3. maí sl. og var fjölmenni eins og undanfarin ár. Kórinn söng nokkur lög af dagskrá sinni. Félag breiðfirskra kvenna og stjórn félagsins sáu um kaffið, en meðlætið sáu þær um ásamt skemmtinefnd, nokkrum kórfélögum og stjórn félagsins. Ritstjóri Breiðfirðings, Svavar Gestsson kynnti 63. útgáfu og var mikil ánægja með ritið og er fyrsta prenntun nánast uppseld.

Þeir sem hafa áhuga á eignast bókina er bent á að skrá sig í áskrift á heimasíðu félagsins www.bf.is Hafa samband”. Breiðfirðingakórinn hélt sína árlegu vortónleika fimmtudaginn 6. maí sl. í Guðríðarkirkju. Á dagskránni voru lög úr ýmsum áttum og hefur hún aldrei verið eins fjölbreytt. Sungið var fyrir fullri kirkju. Kórinn fer í söngferðalag í júní til suður Englands og ætlar að gera garðinn frægann á heimaslóðum kórstjórans.

Hlúð var að reitnum okkar í Heiðmörk 1. júní, gróðursettar plöntur, og lagaður gangstígur.

Sumarferð félagsins verður farin að Árbliki 26. til 28. júní nk. og verður dagskráin með svipuðu sniði og undanfarin ár, sjá nánar á bls. 2. Við vonumst til að sjá sem flesta í sumarferðinni. Vetrardagskráin hefst síðan um miðjan september, sjá nánar á www.bf.is.

Kær kveðja

Snæbjörn Kristjánsson, formaður

 

Sumarferð

Sumarferð félagsins verður að Árbliki 26. til 28. júní.

Dagskrá: 

Á föstudagskvöldinu hittumst við í salnum og spjöllum saman og segjum brandara. Hafið með ykkur gítar eða harmonikku. 

Á laugardag kl. 10:30 verður farið á eigin bílum (menn geta sameinast í bíla) í skoðunarferð um nágrennið, ef veður leyfir. Spilað verðu bingó að skoðunarferð lokinni. Kveikt verður upp í grillinu kl 19:00 og síðan skemmtum við okkur fram eftir nóttu.

Matur:

Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:

Þátttökugjaldið er kr. 4500,- fyrir fullorðna, sem er fyrir leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði, svefnpokaplássi og matinn á laugardagskvöldinu og fleira.

Frítt er fyrir börn yngri en 14 ára.

Þeir sem ekki gista greiða kr. 2500.-

Rafmagn á tjaldstæði kostar kr. 500,- sólarhringurinn.

Ferðir:

Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Skráning:

Skráning í ferðina og pöntun á gistingu, er hægt að gera á heimasíðu félagsins www.bf.is  “Skráning í sumarferð 2015

Símaskráning í ferðina hefst 13. júní, hjá Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og Sigrúnu Eyjólfsdóttur í síma 694-1445.

 

Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn.

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir þriðjudaginn 23. júní vegna matarinnkaupa ofl.

 

Breiðfirðingur

Breiðfirðingur var gefinn út á nýjan leik eftir nokkurra ára hlé. Svavar Gestsson tók að sér að stýra þessu verkefni og var hann kynntur á degi aldraðra þann 3. maí.

Þeir sem vilja gerast áskrifendur eru beðnir um að skrá kennitölu, nafn og heimilisfang á heimasíðu félagsins www.bf.is (Hafa samband) eða í tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

 

Fréttabréfið í tölvupósti

 

Stöðugt fjölgar þeim sem fá fréttabréfið sent í tölvupósti og er það töluverður sparnaður fyrir félagið,  því póstburðargjöld, pappír og ljósritunarkostnaður fer stöðugt hækkandi.

 

Til að fá fréttabréfið sent í tölvupósti er þægilegast að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. þar sem  nafn og heimilisfang kemur fram.

 

 

 

Skráning nýrra félaga

 

Ef þið þekkið einhvern sem vill ganga í Breiðfirðingafélagið, þá er hægt að skrá sig á netinu www.bf.is “Skráningar”

 

 

 

 

 

Minningarkort Breiðfirðingafélagsins

 

Minningarkort Breiðfirðingafélagsins eru til sölu hjá Grétari Sæmundssyni í síma 551-0986 og hjá húsvörðum Breiðfirðingabúðar í síma 892-4511

 

 

 

 

 

Additional information