trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Sumarferð     Skráning í sumarferð 2015

Sumarferð félagsins verður að Árbliki 26. til 28. júní.

Dagskrá: 

Á föstudagskvöldinu hittumst við í salnum og spjöllum saman og segjum brandara. Hafið með ykkur gítar eða harmonikku. 

Á laugardag kl. 10:30 verður farið á eigin bílum (menn geta sameinast í bíla) í skoðunarferð um nágrennið, ef veður leyfir. Spilað verðu bingó að skoðunarferð lokinni. Kveikt verður upp í grillinu kl 19:00 og síðan skemmtum við okkur fram eftir nóttu.

Matur:

Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:

Þátttökugjaldið er kr. 4500,- fyrir fullorðna, sem er fyrir leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði, svefnpokaplássi og matinn á laugardagskvöldinu og fleira.

Frítt er fyrir börn yngri en 14 ára.

Þeir sem ekki gista greiða kr. 2500.-

Rafmagn á tjaldstæði kostar kr. 500,- sólarhringurinn.

Ferðir:

Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Skráning:

Skráning í ferðina og pöntun á gistingu, er hægt að gera á heimasíðu félagsins www.bf.is  “Skráning í sumarferð 2015

Símaskráning í ferðina hefst 13. júní, hjá Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og Sigrúnu Eyjólfsdóttur í síma 694-1445.

 

Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn.

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir þriðjudaginn 23. júní vegna matarinnkaupa ofl.

Additional information