trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 4. tbl. júní 2016 22. árg. er komið út.

 

 Fréttabréf   

BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 

Faxafen 14. 108 Reykjavík S: 581-4511 

4. tbl. júní 2016 22. árgangur 

Ábyrgðarmaður Snæbjörn Kristjánsson

Kæru félagsmenn

Nú er sumarið gengið í garð, trén orðin laufguð og túnin græn. Vetrarstarfi félagsins lauk með degi aldraðra þann, 8. maí sl. og var fjölmenni eins og undanfarin ár. Kórinn söng nokkur lög af dagskrá sinni. Stjórn félagsins sá um kaffið, en meðlætið sá stjórn félagsins ásamt skemmtinefnd og kórfélögum. Ritstjóri Breiðfirðings, Svavar Gestsson kynnti 64. útgáfu og var mikil ánægja með ritið.

Þeir sem hafa áhuga á eignast bókina er bent á að skrá sig í áskrift á heimasíðu félagsins www.bf.is Hafa samband”. Breiðfirðingakórinn hélt sína árlegu vortónleika fimmtudaginn 28. apríl sl. í Guðríðarkirkju. Á dagskránni voru lög úr ýmsum áttum og hefur hún aldrei verið eins fjölbreytt. Sungið var fyrir fullri kirkju. Kórinn fór í söngferðalag daginn eftir tónleikana vestur á Snæfellsnes og var gestakór á tónleikun Samkórs Kópavogs í Stykkishólmskirkju. Einnig var sungið á 1. maí skemmtun í Ólafsvík.

Hlúð verður að reitnum okkar í Heiðmörk 1. júní, gróðursettar plöntur, og lagaður gangstígur.

Sumarferð félagsins verður farin að Heimalandi 24. til 26. júní nk. og verður dagskráin með svipuðu sniði og undanfarin ár, sjá nánar á bls. 2. Við vonumst til að sjá sem flesta í sumarferðinni. Vetrardagskráin hefst síðan um miðjan september, sjá nánar á www.bf.is.

Kær kveðja

Snæbjörn Kristjánsson, formaður

 

Sumarferð 24. til 26. júní

Sumarferð félagsins verður farin að Heimalandi, sem er 22 km austan við Hvolsvöll. Vegalengdin frá Reykjavík er 120 km.

Dagskrá: 

Á föstudagskvöldinu hittumst við í salnum og spjöllum saman og segjum brandara. Hafið með ykkur gítar eða harmonikku. 

Á laugardag kl. 10:30 verður farið á eigin bílum (menn geta sameinast í bíla) í skoðunarferð að Seljalandsfossi, Gljúfrabúa, Þorvaldseyri, Skógarfossi safnið á Skógum, ef veður leyfir. Kveikt verður upp í grillinu kl 19:00 og síðan skemmtum við okkur fram eftir nóttu.

Matur:

Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:

Þátttökugjaldið er kr. 5500,- fyrir fullorðna, sem er fyrir leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði, svefnpokaplássi og matinn á laugardagskvöldinu og fleira.

Frítt er fyrir börn yngri en 14 ára.

Þeir sem ekki gista greiða kr. 3000.-

Rafmagn á tjaldstæði kostar kr. 1000,- sólarhringurinn.

Ferðir:

Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Skráning:

Skráning í ferðina og pöntun á gistingu, er hægt að gera á heimasíðu félagsins www.bf.is  “Skráning í sumarferð 2016”

 

Símaskráning í ferðina, hjá Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og Sigrúnu Eyjólfsdóttur í síma 694-1445.

 

Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn.

 

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir þriðjudaginn 21. júní vegna vegna matarinnkaupa ofl.

 

 

Upphaf dagskrár í haust:

Félagsvistin hefst sunnudaginn 25. september kl 14:00.

Bridge hefst sunnudaginn 25. september kl 19:00.

Prjónakaffið hefst mánudaginn 26. september kl 19:30.

 

Breiðfirðingur

 

Breiðfirðingur var gefinn út á nýjan leik, annað árið í röð, eftir nokkurra ára hlé. Svavar Gestsson tók að sér að stýra þessu verkefni og var hann kynntur á degi aldraðra þann 8. maí.

 

Þeir sem vilja gerast áskrifendur eru beðnir um að skrá kennitölu, nafn og heimilisfang á heimasíðu félagsins www.bf.is (Hafa samband) eða í tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

 

 

Fréttabréfið í tölvupósti

Stöðugt fjölgar þeim sem fá fréttabréfið sent í tölvupósti og er það töluverður sparnaður fyrir félagið,  því póstburðargjöld, pappír og ljósritunarkostnaður fer stöðugt hækkandi.

Til að fá fréttabréfið sent í tölvupósti er þægilegast að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. þar sem  nafn og heimilisfang kemur fram.

 

 

 

Skráning nýrra félaga

Ef þið þekkið einhvern sem vill ganga í Breiðfirðingafélagið, þá er hægt að skrá sig á netinu www.bf.is “Skráningar

 

Additional information