trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Hagyrðingakvöldið var haldið, 17. nóv. sl.

Hagyrðingakvöldið, var að þessu sinni í samstarfi við Barðstrendingafélagið

og tókst mjög vel.
Ólína Kristín Jónsdóttir stjórnaði kvöldinu af miklum skörungsskap.

Hagyrðingar voru: 
Einar Óskarsson, Hjörtur Þórarinsson, Jóhannes Gíslason, Hlíf Kristjánsdóttir og Ragnheiður Þóra Ragnarsdóttir.
Einnig voru lesnar vísur frá Guðmundi Arnfinnssyni.

Margir botnar bárust við fyrriparta og var vandasamt hjá dómnefndinni að velja þá bestu. Í dómnefnd voru þær Aðalheiður Hallgrímsdóttir og Jónína Hafsteinsdóttir.
Að þeirra mati átti Pétur Ottesen besta botninn.

Hvað er það besta sem guð hefur gert,
gætir þú sagt mér það núna?
Hann vísar mér leið, en ég veit ekki hvert
ég verð bara að halda í trúna.

Ég vil, fyrir hönd Breiðfirðingafélagsins, þakka Barðstrendingum kærlega fyrir kvöldið.
Snæbjörn Kristjánsson

Myndir frá hagyrðingakvöldi 2016

afmailsvisa 16

 

Additional information