Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Aðalfundarboð 2024

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í Breiðfirðingabúð mánudaginn 26. febrúar 2024 og hefst kl. 20:00.

Boðið verður uppá léttar kaffiveitingar.

Dagskrá:

  1. Inntaka nýrra félagsmanna.
  2. Skýrsla stjórnar um störf félagsins frá síðasta aðalfundi sem haldinn var 23. febrúar 2023.
  3. Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðasta almanaksár.
  4. Skýrslur deilda félagsins. Það eru: Bridgedeild, Minningarsjóður og Breiðfirðingakórinn.
  5. Tillögur að lagabreytingum. Stjórn leggur fram til samþykktar á fundinum tillögu um samruna Breiðfirðingafélagsins og Barðstrendingafélagsins undir nafni og kennitölu Breiðfirðingafélagsins. Sjá tillöguna hér. Fyrir liggur samrunaáætlun félaganna ásamt samþykktum sameinaðs félags og samrunaefnahagsreikningi
  6. Verði tillaga samkvæmt 5. dagskrárlið samþykkt, leggur stjórn til að 7. og 8. dagskrárlið verði frestað þar til fyrir liggur hvort af samruna verður og haldinn verður almennur félagsfundur í sameinuðu félagi, eða eftir atvikum framhaldsaðalfundur, til afgreiðslu hinna frestuðu liða. Jafnframt leggur stjórn til að henni verði falið að sitja áfram þar til ný stjórn hefur verið kjörin.
  7. Aðalstjórn félagsins kosin, til eins árs, ásamt varamönnum.
  8. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga, til eins árs, ásamt varamönnum.
  9. Önnur mál.

 

---------------------------------------------------

Additional information