Myndir úr félagsstarfinu
Sumarferð 2016 Skráning í sumarferð 2016
Sumarferð félagsins verður farin að Heimalandi, sem er 22 km austan við Hvolsvöll. Vegalengdin frá Reykjavík er 120 km.
Dagskrá:
Á föstudagskvöldinu hittumst við í salnum og spjöllum saman og segjum brandara. Hafið með ykkur gítar eða harmonikku.
Á laugardag kl. 10:30 verður farið á eigin bílum (menn geta sameinast í bíla) í skoðunarferð að Seljalandsfossi, Gljúfrabúa, Þorvaldseyri, Skógarfossi safnið á Skógum, ef veður leyfir. Kveikt verður upp í grillinu kl 19:00 og síðan skemmtum við okkur fram eftir nóttu.
Matur:
Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.
Þátttökugjald:
Þátttökugjaldið er kr. 5500,- fyrir fullorðna, sem er fyrir leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði, svefnpokaplássi og matinn á laugardagskvöldinu og fleira.
Frítt er fyrir börn yngri en 14 ára.
Þeir sem ekki gista greiða kr. 3000.-
Rafmagn á tjaldstæði kostar kr. 1000,- sólarhringurinn.
Ferðir:
Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.
Skráning:
Skráning í ferðina og pöntun á gistingu, er hægt að gera á heimasíðu félagsins www.bf.is “Skráning í sumarferð 2016”
Símaskráning í ferðina, hjá Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og Sigrúnu Eyjólfsdóttur í síma 694-1445.
Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn.
Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir þriðjudaginn 21. júní vegna vegna matarinnkaupa ofl.