Fréttir frá Breiðfirðingakórnum
Fréttir frá kórnum haust 2022
Breiðfirðingakórinn hefur hafið æfingar að nýju og er þetta annað árið okkar með Kristínu Sigurðardóttur sem kórstjóra. Síðasta ár var ljómandi gott – eða hljómandi gott – og við nutum þess að syngja saman á ný. Æfingar verða áfram á miðvikudagskvöldum, annan hvern mánudag og einstaka laugardag – stundum æfir ein rödd (sópran, alt, tenór, bassi) í einu og stundum er allur kórinn saman á æfingu. Ætlunin er að leggja land undir fót vorið 2023 og er förinni heitið til frænda okkar í Noregi. Það er því spennandi söngár framundan. Gamlir kórfélagar hafa snúið aftur í kórinn og er það vel; nýir félagar eru einnig velkomnir og ef þú hefur áhuga þá láttu heyra í þér hjá formanninum í síma 690-7493 eða á netfanginu benny@internetis
Með syngjandi kveðju Jóh. Benný Hannesdóttir
Skráð 20.09.2022
Fréttir frá kórnum haust 2020
Kæru kórfélagar Breiðfirðingakórsins og aðrir velunnarar.
Við í Breiðfirðingakórnum höfum misst ansi mikið úr kórstarfinu vegna Covid-19 þar sem síðasta æfing okkar var líklega 4. mars s.l.
Jólatónleikar 2017
Breiðfirðingakórinn syngur inn jólin á tónleikum í Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 17. desember kl. 20:00
Sækja auglýsingu í pdf